frétt
Leiðsögn kl:15 á íslenska safnadeginum
Leiðsögn kl:15 á íslenska safnadeginum
Á íslenska safnadeginum verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýningu safnsins ,,Úr hafi til hönnunar". Leiðsögnin hefst kl. 15 og er í umsjón Árdísar Olgeirsdóttir fræðslufulltrúa. Í leiðsögninni verður varpað ljósi á afar sérstakt hráefni sem unnið er á Íslandi, fiskleðrið, og notkun þess hjá fjölda hönnuða víða um heim á síðustu átta árum.
Frægustu tískuhúsin hafa notað íslenska fiskleðrið og má nefna allsérstaka kampavínstösku eftir Karl Lagerfeld en hann sérvaldi karfaroð frá Íslandi í örfáar töskur sem eru sannkallaðir eðalgripir. Eins eru á sýningunni fylgihlutir og fatnaður frá John Galliano, Nike, Christian Dior, Salvatore Ferragamo og skór frá Donnu Karan úr þessu íslenska hráefni. Af íslensku hönnuðunum sem hafa notað fiskleðrið í afar vandaðan fatnað, skart, nytjahluti og húsgögn má nefna fatahönnuðina Helgu Björnsson og Steinunni Sigurðardóttur, Eggert Jóhannsson feldskera, Önnu Gunnarsdóttur textílhönnuð, Arndísi Jóhannsdóttur í Kirsuberjatrénu, Þórdísi Zoega húsgagnahönnuð, fyrirtækið Nikita sem framleiðir útivistarfatnað á stúlkur, Farmers Market, gullsmiðinn Dýrfinnu Torfadóttur og skartgripahönnuðinn Helgu Mogensen. Margt fróðlegt kemur fram á þessari sýningu, myndband tekið hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki lýsir iðnaðarframleiðslunni hjá hráefnisframleiðandanum og einnig eru til sýnis hlutir úr roði, íslenskir roðskór, bókband úr hákarlsleðri og roðlampar eftir Fanneyju Antonsdóttur og Dögg Guðmundsdóttur.
Í safninu er einnig sýningin ,,Sýnishorn úr safneign" með völdum hlutum sem sýna hvert söfnunarsvið safnsins er. Þar kannast eflaust allir við einhverja hluti!
Verið velkomin. Aðgangur er ókeypis.
Kaffiveitingar og verslunin Kraum í anddyri safnsins