28/04/23 - 27/08/23

Um sýninguna

Ýr Jóhannsdóttir hefur starfað sem textílhönnuður undir nafninu Ýrúrarí frá árinu 2012 og skapað sér nafn á Íslandi sem og erlendis. Verkefni Ýrúrarí byggjast að mestu á textíl þar sem hún leikur sér með mörk búninga og hversdags klæðnaðar. Undanfarin ár hefur sjálfbærni og endurvinnsla litað verkefni hönnuðarins sem vinnur aðallega með efnivið úr textíl sem safnast upp á endurvinnslustöðvum.

Á sýningunni gefur að líta nýjar peysur eftir Ýrúrarí. Ferlið byggist á tilraunum með fjölbreyttar aðferðir og útfærslur sem veita ósöluhæfum peysum úr endurvinnslustöðvum sterkari nærveru svo þær haldist í notkun um ókomna tíð. Í anda fyrri verkefna Ýrúrarí eru peysurnar unnar á húmorískan hátt með leikgleði að leiðarljósi. Markmiðið er að lífga upp á hversdaginn.

Verk eftir Ýrúrarí má m.a finna í ýmsum spennandi fataskápum en einnig í safneignum Textiel Museum í Hollandi, Museum für Kunst und Gewerbe í Hamborg, Museum of International folk Art í Nýju Mexíkó, National Museums of Scotland og Hönnunarsafni Íslands.

Meðfram sýningunni fara fram smiðjur og aðrir viðburðir sem skoða má betur á fb og heimasíðu Hönnunarsafns Íslands.

Sunnudagur 30. apríl kl 13:00 - Opin smiðja með Ýrúrarí.

Sunnudagur 7. maí kl. 13:00 - Leiðsögn með Ýr og sýningarstjórum Niki og Yiwei hjá Studio Fræ  (hluti af leiðsögninni fer fram á ensku).

Sunnudagur 20. ágúst kl. 13:00 - Opin Smiðja með Ýrúrarí.

Sunnudagur 27. ágúst kl. 13:00 - Opin smiðja með Ýrúrarí.

Á meðan á sýningunni stendur mun Ýrúrarí vinna grunn fyrir bókverk með yfirliti yfir eldri verk og innsýn yfir efnivið og aðferðir sem hún notar í verk sín. Grunnur bókverksins byggist á peysu sem mun mótast smám saman yfir tímabilið og verður ferlið skrásett á myndrænan hátt jafnóðum á safninu.

Árið 2020 var verkefni Ýrúrarí “Peysa með öllu”, sem unnið var í samstarfi við fatasöfnun RKÍ, tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands. Verkefnið var þróað áfram á opinni vinnustofu Hönnunarsafns Íslands árið 2021 í formi skapandi fataviðgerðarsmiðja. Smiðjan hefur nú ferðast víðsvegar um Evrópu.

 

Stúdíó Fræ  er alþjóðlegt hönnunarstúdíó sem starfar bæði á Íslandi og Kína. Stúdíó Fræ samanstendur af hönnuðunum Niki Jiao og Yiwei Li sem luku báðar meistaragráðu í hönnun við Listaháskóla Íslands. Störf Stúdíó Fræ eru fjölbreytt: Hönnunar ráðgjöf, markaðssetning, vöruþróun, sýningarhönnun, margmiðlun, útgáfua og ljósmyndun. Hönnunarstúdíóið hefur m.a unnið að verkefnum með Bioeffect, 66°norður, fatahönnuðinum Magneu ásamt myndaþáttum fyrir tímaritið HA.

 

Sýningin er styrkt af Safnasjóði