SÝNISHORN ÚR SAFNEIGN


Eitt af meginmarkmiðum Hönnunarsafnsins er að safna hönnunargripum
og varðveita þá sem marktækan vitnisburð um íslenska hönnunar- og
listhandverkssögu. Rannsóknir eru skammt á veg komnar á flestum sviðum hönnunar á Íslandi.

Söfnun muna miðast við tímabilið 1900 til samtíma.

Safneignin í dag samanstendur af rúmlega 1200 gripum en á langt í land
með að endurspegla á heildrænan hátt hönnunarsögu ákveðins tímabils,
stílsögu þess eða einn flokk hönnunar umfram annan.

HVERJU ER SAFNAÐ?

• Vefnaður, klæðagerð og fatahönnun
• Húsgögn
• Prentgripir
• Innanhússhönnun
• Vöru- og iðnhönnun
• Gull- og silfursmíði
• Leirlist og glerlist 
• Byggingarlist

Textar og sýningarstjórn: Arndís S. Árnadóttir



Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli