Opnun
01.04.202518:00

UnndórEgillJónsson

Unndór Egill Jónsson er myndlistamaður sem skapar einstök húsgögn úr íslensku birki þar sem náttúrulegum og geómetrískum formum er teflt saman. Hugmyndafræðin á bak við verkin snýst um að blanda saman þessum andstæðu formum á þann hátt að þau styðji hvort annað og gefi tilfinningu fyrir einingu. Handverkið leikur lykilhlutverk í að samruninn heppnist og til að undirstrika það hefur Unndór sett verkstæði sitt upp á safninu. Þar er verkfærum listamannsins gert hátt undir höfði en þau eru forsenda þess að hægt sé að móta efniviðinn. Húsgögnin eru unninn á staðnum og birtast eitt af öðru meðan á sýningunni stendur. Þau endurspegla tímann, náttúruna, verkvitið og hugvitið sem þau spretta úr.

Á sama tíma verður Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður með uppskeruhátíð en hún hefur verið í vinnustofudvöl í safninu undanfarnar vikur og Brynjar Sigurðarson vöruhönnuður opnar sýningu á Pallinum.

Sýningarnar eru hluti af HönnunarMars 2025