Hvað leynist á bak við tjöldin?

sunnudagur, 22 maí, 2016 - 14:00 - 16:00
Hvað leynist á bak við tjöldin?

Í tilefni af íslenska safnadeginum verður boðið upp á leiðsagnir þann 22. maí þar sem skyggnst verður bak við tjöldin í Hönnunarsafninu.

Gestir fá tækifæri til að ganga um mismunandi vinnurými safnsins og heyra um það  fjölbreytta starf sem þar á sér stað.

Í safneign Hönnunarsafnsins eru rúmlega 1300 gripir og mikill meirihluti þeirra eru húsgögn.  Mikið starf fer fram í tengslum við safneign safnsins jafnvel þó ekki sé verið að setja upp sýningar. 

Í leiðsögn um varðveislurýmin gefst einstakt tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast gripum og starfi eina safns landsins sem safnar einvörðungu hönnun og nytjalist.

Takmarka þarf fjölda gesta í  hverri leiðsögn og er miðað við 10 gesti í hóp.

Boðið verður upp á  þrjár leiðsagnir sem taka  um hálftíma hver :Kl. 14:00; 15:00 og 16:00.

Ókeypis aðgangur er í safnið þennan dag.