Sunnudaginn 31. janúar er lokadagur sýningarinnar 100% ULL.

Af því tilefni ætla Birgir Örn Jónsson sýningarstjóri og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands að vera með leiðsögn um hana þann sama dag.

Ullarvinnsla hefur löngum verið samofin handverks-og iðnaðarsögu þjóðarinnar og eru nú um 750 tonn af ull nýtt í ullarframleiðslu á hverju ári.

Á sýningunni er hægt að fræðast um sex ólík verkefni íslenskra hönnuða og fyrirtækja þar sem íslenska ullin er nýtt á ýmsa vegu.

Þeir hönnuðir og fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni eru:

Kula by Bryndís, Ásthildur Magnúsdóttir vefari, Ró, Kormákur og Skjöldur, Magnea og Ístex.

Vegna fjöldatakmarkana mælum við með því að kaupa miða á viðburðinn fyrirfram.
Hér er tengill á miðasöluna:
https://tix.is/is/event/10879/lei-sogn-um-syninguna-100-ull/