Regnbogasmiðja með Dagrúnu Ósk Jónsdóttur þjóðfræðingi og Ásgerði Heimisdóttur hönnuði, verður haldin í Smiðju Hönnunarsafnsins laugardaginn 9. apríl kl. 13:00 - 15:00.
Unnið er með drauma, hjátrú og fegurð regnbogans í Smiðjunni. Hönnun, handverk og pælingar fyrir alla fjölskylduna.
Dagskráin er liður í Barnamenningarhátíð í Garðabæ.
____________________________________________
Heildardagskrána fyrir laugardaginn 9. apríl :

Bókasafn Garðabæjar
kl. 12-14Kynjaverur; grímu og klippimyndasmiðja með Hrund Atladóttur myndlistarkonu.

Glerhýsið Garðatorgi 1-4
kl. 12-14
Víkingaskipasmiðja með myndlistarkonunum Rakel Andrésdóttur og Sölku Rósinkranz sem velta upp spurningum um hvernig var að vera barn á leið til Íslands á landnámsöld.

Hönnunarsafn Íslands
kl. 13-15
Regnbogasmiðja með Dagrúnu Ósk Jónsdóttur þjóðfræðingi og Ásgerði Heimisdóttur hönnuði. Draumar, hjátrú og fegurð regnbogans í Smiðjunni. Hönnun og handverk og pælingar fyrir alla fjölskylduna.

Hönnunarsafn Íslands
kl. 12-17
Sundfjör! Leiðsögn á eigin vegum í gegnum Sund.

Hönnunarsafn Íslands
kl. 12-17
Ókeypis aðgangur að sýningunum Sýndarsund og Sund.

Glerhýsið Garðatorgi 7
kl. 13.30
Húlladúllan húllar og húllar. Allir geta tekið þátt í hreyfingu, gleði og almennu fjöri.

Sýningar á verkum nemenda:

Glerhýsið Garðatorgi 1
Furðulaugar, sýning á sundlaugum nemenda í 3. og 4. bekk.
Rán Flygenring mótaði hugmyndina ásamt Þóru Sigurbjörnsdóttur safnkennara í samstarfi við Ásgerði Heimisdóttur hönnuð.

Bókasafn Garðabæjar
Kynjaverur. Sýning á teikningum barna í leikskólunum Urriðaholti og Hæðarbóli sem unnu með rithöfundinum og viðburðarstjóra safnsins, Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur.