Leiðsögn
20.10.202413:00

Leiðsögnmeðdansdæmum

Almenn leiðsögn um sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili. Til gamans ætlum við að skoða nokkur dansdæmi frá tímabilum sem tengjast hlutum á sýningunni. Er mögulega eitthvað samband á milli tíðaranda í hönnun og tíðarandi í dansi.

Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður safnsins sjá um leiðsögnina.

Sýningin Hönnunarsafnið sem heimili samanstendur af um 200 íslenskum hönnunagripum frá árinu 1930 til dagsins í dag.
Sýningin er sett upp sem grunnmynd af heimili en líkt og á heimilum fólks má sjá þar hlið við hlið hluti frá mismunandi tímabilum. Húsgögn, borðbúnaður, fatnaður, bækur og textíll varpa ljósi á brot af því sem íslenskir hönnuðir og handverksfólk hefur skapað.
Í augnablikinu er skemmtileg viðbót við sýninguna sem ber yfirskriftina “Örverur á heimilinu” þar sem skyggnst er inn í samlífi manna og örvera.