27.03.202213:00

SUND
Leiðsögn

Sýningarstjórar SUNDs, þau Valdimar T. Hafstein, þjóðfræðingur og Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður munu ganga með gestum um sýninguna og draga fram áhugaverðar sögur tengdar sundinu og sýningunni.

Leiðsögnin fer fram 27. mars kl. 13:00.

Aðgangseyrir að safninu gildir.

Mikilvægustu almannagæðin á Íslandi eru fólgin í heita vatninu. Athyglisverðustu almannarýmin eru sundlaugarnar. Sundlaugamenningin snýst um lífsgæði og lýðheilsu, íþróttir, leik, afslöppun og skemmtun, líkamsmenningu, siðmenntun og samneyti. Daglegt líf hefur í gegnum tíðina sett mark sitt á sundlaugarnar og gert þær að líkamsræktarstöð, skólastofu, félagsheimili, leikvelli og heilsulind.

Mörg svið hönnunar koma við sögu í sundlaugamenningunni. Arkitektúr gegnir lykilhlutverki og þróun lauganna endurspeglar lifandi samtal arkitekta og samfélags. Grafísk hönnun, vöruhönnun, fatahönnun og upplifunarhönnun koma saman í sundinu. Sundlaugarnar eru samfélagshönnun: þær hafa mótað samfélag, menningu og líkama fólksins í landinu í meira en öld. Samfélagshönnun snýst um að skapa vellíðan og bæta daglegt líf fólks, ekki að skapa söluvöru.

 

Sýningin stendur til 23. 10. 2022