Uppskeruhátíð
20.05.202112:00

PEYSAMEÐÖLLUFYRIRALLA

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing. Ýr hefur miðlað aðferðarfræði sinni í smiðjum þar sem unnið er með ósöluhæfar peysur úr fatasöfnun Rauðakrossins og þær fá nýtt líf.

Ýr stundaði nám í textílhönnun við Myndlistarskólann í Reykjavík og lauk BA gráðu í faginu frá Glasgow School of Art árið 2017 og stundar nú nám í listkennsludeild LHÍ. „Peysa með öllu fyrir alla“ er hluti af lokaverkefni Ýrar.

Undanfarna fjóra mánuði hefur Ýr verið í vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands. Þar hefur hún haldið áfram með verkefnið „Peysa með öllu“ sem kynnt var á HönnunarMars 2020. Þá hóf hún samstarfi við fatasöfnun Rauða Krossins með peysur sem lent höfðu í óhöppum í fyrra lífi og voru því ekki boðlegar til sölu í verslunum Rauða Krossins.

Enn safnast upp töluvert magn af ósöluhæfum peysum til fatasöfnunarinnar og þörf er á fleiri hugum og höndum í verkið. Framhald verkefnisins er því „Peysa með öllu fyrir alla“. Á vinnustofunni hefur Ýr unnið áfram með aðgengilegar og skapandi fataviðgerðir með miðlunarleiðum sem gera fataviðgerðirnar persónulegar og skemmtilegar. Markmið verkefnisins er breiða út boðskapinn sem er að stuðla að lengri samverutíma okkar með þeim fötum sem við eigum nú þegar eða eins og Ýr bendir á „Vistvænasta flíkin er nú þegar í fataskápnum þínum“.

Fólki hefur verið boðið að taka að sér peysu frá Rauða Krossinum og taka þátt í smiðjum í skapandi fataviðgerðum. Uppskera þessarar vinnu verðu til sýnis á HönnunarMars ásamt þeim peysum sem Ýr sjálf hefur umbreytt á tímabilinu. Í tengslum við uppskeruhátíðina verður boðið upp á skapandi viðgerðarsmiðjur frá föstudegi til sunnudags frá kl. 12–18