Matarviðburður
05.10.202416:00–16:40

Þaðjafnastekkertáviðbrauð

Leikrænn matarviðburður eftir Ragnheiði Maísól Sturludóttir um marglaga heim súrdeigsins. Matargestum er boðið í ferðalag þar sem öll skynfæri þeirra eru virkjuð. Samtímis er m.a. varpað ljósi á hvaða áhrif hinn hægi tími súrdeigsins hefur á hinn hraða tíma nútímans, hvaða tilfinningar og vensl súrdeigið getur falið í sér og hvernig súrdeig hefur fylgt okkur í gegnum mannkynssöguna.

Verkið byggir á lokaverkefni Ragnheiðar Maísólar í hagnýtri þjóðfræði við HÍ en þar rannsakaði hún samband bakara við súrdeigið sitt og áhrif baksturs á daglegt líf þeirra.