Námskeið
23.05.202414:00–17:00

Leikumoglögum
útsaumsnámskeiðmeðAdrianaTorres

Leikum og lögum er tveggja daga útsaumsnámskeið dagana 23. og 24. maí kl 14:00-17:00 í Hönnunarsafni Íslands.

Adriana Torres, listakona og hönnuður frá Argentínu, leiðir námskeiðið. Hún nam arkitektúr og grafíska hönnun við Háskólann í Buenos Aires og hefur sýnt hönnun sína á hátíðum á borð við 100% Design í London, Maison & Object í París og Pitti Bimbo á Ítalíu. Adriana hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir verk sín og kennt útsaum víðsvegar í S-Ameríku, Evrópu og Bandaríkjunum.

Á þessu námskeiði fá þátttakendur silkiprentað efni með mynd af stól og peysu. Adriana leiðir leik þar sem nemendur klippa í efnið, rekja það upp og gera göt í það. Þegar leiknum er lokið er kominn tími til að laga! Nemendur læra útsaumsspor og aðferðir til að laga flíkur á skapandi hátt. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum í útsaumi.

Verð fyrir námskeið: 15.990 kr

Innifalið í námskeiðsgjaldi: silkiprentað efni, útsaumsgarn, nálar og leiðarvísir.

Ekki innfalið í námskeiðsgjaldi: útsaumshringir

Skráning á tix.is:

https://tix.is/is/event/17444/leikum-og-logum-utsaumsnamskei-me-adriana-torres/