Föstsýning
20.01.2023–31.12.2025

Hönnunarsafniðsemheimili

 Á sýningunni, Hönnunarsafnið sem heimili, má finna í kringum 200 dæmi um íslenska hönnun en safneign Hönnunarsafns Íslands telur í heild um 5000 muni frá árinu 1900 til dagsins í dag.

Sýningin er sett upp sem grunnmynd af heimili en líkt og á heimilum fólks má sjá þar hlið við hlið muni frá mismunandi tímabilum. Húsgögn, borðbúnaður, fatnaður, bækur og textíll frá ólíkum tíma koma saman og varpa ljósi á brot af því sem íslenskir hönnuðir og handverksfólk hefur skapað.

Heimilið er í sífelldri þróun. Stöðugt er verið að færa til, skipta út og breyta. Sköpun heimilis er lifandi ferli án endapunkts, en heimilið er fyrst og síðast sköpun þeirra sem þar búa. Smekkur, sem getur mótast af ýmiss konar áhrifaþáttum í lífi hvers og eins, er það sem gefur hverju og einu heimili sín sérkenni.

Sýningarstjórar: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir

Ljósmynd: Studio Fræ

Sýningin er styrkt af Safnasjóði